Fara í efni

Borgin frístund leitar eftir starfsmanni í 50-100 % starf

Borgin frístund er lengdri viðveru og skammtimadvöl fyrir fötluð grunnskólabörn í Norðurþingi í 5. - 10. bekk.

Borgin frístund leitar að sjálfstæðum einstakling með góða færni í mannlegum samskiptum til að vinna í lengdri viðveru fyrir fötluð grunnskólabörn í 5. - 10. bekk í vetur. Starfið felst í tómstunda- og dægradvöl með fötluðum grunnskólabörnum á aldrinum 10-16 ára. Markmið lengdu viðverunnar er að efla félagslegan þroska þátttakenda og stuðla að virkni og félagslegri þátttöku ungmenna í frístundum. Í starfinu er nærumhverfið notað til að þjálfa ungmennin í sjálfstæði, félagsfærni og samskiptafærni. Þátttakendunum er mætt á þeirra grundvelli og þeim veitt þjónusta við hæfi.

Starfið

  • Tómstunda- og dægradvöl með fötluðum grunnskólabörnum á aldrinum 10-16 ára.
  • Einstaklingsmiðu þjónusta
  • Umbætur og þróun
  • Upplýsingarmiðlun
  • Samskipti og samstarf við starfsfólk, þátttakendur, foreldra, skóla og hinar ýmsu stofnanir sem tengjast starfseminni
  • Í boði er allt að 50%-100% starf. Vinnutími er 12:15-16:15. Virka daga í frístundarúrræði, einnig er í boði að taka vinnu um helgar í skammntímadvöl

Menntun og hæniskröfur

  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri

Góð Íslenskukunnátta er skilyrði

  • Reynsla í starfi með fötluðum er kostur
  • góð færni og Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð skilyrði

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.Umsóknir  skulu berast Hróðnýju Lund félagsmálastjóra á netfangið hrodny@nordurthing.is

eða til Tinnu Óskarsdóttur tinna@nordurthing.is

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Upplýsingar gefa Hróðný Lund eða Tinna Ósk Óskarsdóttir í síma 4646100.

Umsóknarfrestur er til og með 29 september

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið