Borgin sumarfrístund
18.03.2026
Tilkynningar
Í sumar verður boðið upp á sumarfrístund fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10–18 ára með langvarandi stuðningsþarfir.
Sumarfrístund er opin frá 8. júní og þar til skólinn hefst aftur í lok ágúst. Opnunartími sumarfrístundar er frá kl. 8-16 alla virka daga.
Sumarlokun sumarfrístundar verður síðustu tvær vikurnar í júlí, frá mánudeginum 20. júlí til þriðjudags 4. ágúst.
Boðið verður upp á fjölbreytt skapandi starf og útiveru sem verður skipulögð í samvinnu við börnin eftir óskum og áhugasviðum þeirra.
Skráningu lýkur föstudaginn 22. maí 2026.
Við hlökkum til að heyra frá ykkur,
Iris M. Waitz, iðjuþjálfi.
Forstöðumaður í Borginni frístund og skammtímadvöl.
Símanúmer: 696-1201 og netfang: irisw@nordurthing.is