Borgin vetrarfrístund - Skráning
Skráning fyrir Borgina vetrarfrístund fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10–18 ára með langvarandi stuðningsþarfir á skólaárinu 2026-2027 er hafin.
Vetrarfrístundin verður opnuð aftur mánudaginn 24. ágúst og verður opin þar til skólanum lýkur í byrjun júní 2027.
Opnunartími vetrarfrístundar er frá kl. 12-16 alla virka daga og á þeim dögum (öðrum en lögbundnum frídögum) þegar skólar starfa ekki.
Boðið verður upp á innihaldsríkt frístundastarf í öruggu og skapandi umhverfi þar sem starfshættir koma til móts við þarfir hvers og eins með það markmið að efla félagsfærni og sjálfstæði.
Skráning fer fram í gegnum íbúagátt Norðurþings - Íbúagátt
Skráningu lýkur föstudaginn 14. ágúst 2026.
Við hlökkum til að heyra frá ykkur,
Iris M. Waitz, iðjuþjálfi.
Forstöðumaður í Borginni frístund og skammtímadvöl.
Símanúmer: 696-1201 og netfang: irisw@nordurthing.is