Brúðubíllinn á Kópakeri 18. júlí
Brúðubíllinn sýnir leikritið Ys & Þys í Brúðubílnum sem er bráðskemmtileg blanda af því besta sem Brúðubíllinn hefur upp á að bjóða!
Lilli api er að leita að rólunni sinni og á leiðinni hittir hann margar skemmtilegar persónur. Þar á meðal Svörta svöl, Blúndu og Hanann sem segir okkur söguna af varðhundinum Seppa sem kann ekki að gelta.
Fiskarnir mæta á svæðið og syngja, Kolkrabbinn tekur nokkur dansspor, Robbi rostungur kennir okkur að synda og Dúskur sýnir ótrúlega töfra.
Ómissandi skemmtun fyrir alla fjölskylduna! ✨
Einnig verður leikskrá með litabók í boði fyrir börn eftir sýninguna líka myndataka með Lilla apa!
Við hlökkum til að sjá ykkur klukkan 15:00 þann 18. júlí á Kópaskeri !
Leikarar: Hörður Bent Steffensen, Hugrún Ylfa og Halldór Ívar
Leikstjóri: Aldís Davíðsdóttir
Staðsetning
