List fyrir alla er nýtt listverkefni á forræði mennta- og menningarmálaráðuneytisins
List fyrir alla er ætlað að velja og miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla er lögð á list fyrir börn og list með börnum.
Sundlaugin á Raufarhöfn er lokuð um óákveðin tíma vegna viðhalds. Unnið er að þrifum og málunn á lauginni og mun hún opna við fyrsta tækifæri. Stefnt er að því að opna aftur um 20. október.
Ákveðið hefur verið að fara að fordæmi Reykvíkinga og slökkva á götuljósum á Húsavík í kvöld til kl 23.00.
Ástæðan er sú að spáð er glæsilegri norðurljósasýningu í kvöld.
Vonir standa til að það verði heiðskýrt þannig að sýning náttúrunnar skili sér sem allra best.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna varkárni á meðan götuljósin eru slökkt.
Æskulýðs- og menningarnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga auglýsir fullt starf ráðgjafa með ráðningartíma út ágúst 2017. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Megin verkefnið er aðstoð við styrkingu innviða fyrirtækja á svæðinu til að gera þau hæfari í að takast á við þau tækifæri sem m.a. skapast vegna þeirrar miklu uppbyggingar sem nú stendur yfir í héraðinu.