Áætluð eignamörk í landeignaskrá
HMS hefur lokið við að áætla eignamörk um 1.160 jarða á Norðausturlandi og Austurlandi. Í upphafi árs 2023 var um 29% flatarmáls Íslands afmarkað í landeignaskrá. Hlutfallið jókst í 39% árið 2024, 62% árið 2025 og nú í október 2026 er það komið yfir 80% með áætlun eignamarka á Norðaustur- og Austurlandi.
Þann 22. október sendi HMS eigendum jarða á Norðaustur- og Austurlandi bréf þess efnis að drög að áætluðum eignamörkum væru komin í birtingu. Bréfið er aðgengilegt eigendum á Mínum síðum á Íslandi.is og hafa þeir sex vikur til að bregðast við. Mikilvægt er að landeigendur kynni sér gögnin, hvort sem þeir telja áætlunina rétta eða vilja benda á annað. Þekking landeigenda á staðháttum, eldri merkjum og fyrirliggjandi gögnum getur skipt miklu við lokavinnslu áætlunarinnar.
Verkefnið snýst um að áætla eignamörk á loftmyndum út frá þeim heimildum og upplýsingum sem eru tiltækar, svo sem landamerkjaskjölum, þinglýstum gögnum, kortum, örnefnalýsingum og staðháttum. Ekki gerð krafa um að landeigendur mæli upp mörkin eða láti gera merkjalýsingu innan frestsins, því áætluð eignamörk breyta hvorki eignarrétti né þinglýstum réttindum. Tilgangur verkefnisins er að draga fram bestu fáanlegu mynd af legu eignamarka og sýna jafnframt hvar óvissa eða ágreiningur er fyrir hendi. Þegar sex vikna frestinum lýkur fer HMS yfir allar innsendar athugasemdir, metur gögnin og hefur eftir atvikum samband við landeigendur til að fá frekari skýringar. Stefnt er að því að birta niðurstöður áætlunarinnar um eða eftir áramót.
Nánari upplýsingar er á vef Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar, hér.