Fara í efni

Eignin Skúlagarður í Kelduhverfi er til sölu

Eignin Skúlagarður í Kelduhverfi er til sölu.

Hótelið er sérlega vel staðsett í Kelduhverfi í fallegu umhverfi. Hótelið er innan Demantshringsins sem er um 250 km langur hringvegur sem tengir saman margar af helstu náttúruperlum svæðisins. Á hringnum má m.a. fara að  Mývatni, Dettifossi, Ásbyrgi, Hljóðaklettum, Goðafossi og í gegnum Húsavík

Skúlagarður er samtals 912,4 fermetrar að stærð og skiptist þannig að gistihús með 17 herbergjum er skráð 632 fermetrar, félagsheimili er skráð 1959 og er það á sér fastanúmeri svo er bílskúr sem byggður var við húsið árið 1965 47,1 fermetrar.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson í síma 865-7430 eða netfanginu hermann@logeign.is.
Einnig má sjá upplýsingar á vef Lögeignar