Fara í efni

Endurskoðun aðalskipulags Norðurþings 2025-2045 - Niðurstaða sveitarstjórnar Norðurþings

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti þann 25. mars 2026 eftirfarandi tillögu samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr 123/2010: Endurskoðun aðalskipulags Norðurþings 2025-2045.

Aðalskipulag er stefna sveitarfélags um landnotkun, náttúruvernd og þróun byggðar í öllu sveitarfélaginu. Skipulagsmörk miða við sveitarfélagsmörk á landi og 115 metra utan við stórstraumsfjöruborð á sjó í samræmi við skilgreiningu staðarmarka sveitarfélaga í sveitarstjórnarlögum og jarðalögum. Aðalskipulagi er ætlað að stuðla að markvissri þróun þar sem tillit er tekið til heildarhagsmuna, miðla málum milli ólíkra hagsmuna íbúa og stuðla að öryggi almennings og lífsgæðum samkvæmt skipulagsreglugerð.

Opin hús voru haldin vegna vinnslutillögu sem var í kynningu frá 2. janúar 2025 til 9. febrúar 2025. Kynningarfundur var haldinn í sal Borgarhólsskóla á Húsavík þann 21. janúar, í Félagsheimilinu Hnitbjörg á Raufarhöfn og Skólahúsinu á Kópaskeri 22. janúar 2025. 69 athugasemdir og umsagnir bárust á kynningartíma. Sveitarstjórn afgreiddi athugasemdirnar og gáfu þær tilefni til breytinga á tillögunni en breytingar má nálgast undir málsnúmeri 538/2023 í Skipulagsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar auk viðbragðsskjals við athugasemdum og umsögnum. Minniháttar breytingar voru gerðar á tillögunni eftir að kynningartíma lauk og má einnig finna þær í viðbragðsskjali.

Endurskoðun aðalskipulags Norðurþings verður send til Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar sem sér um lokaafgreiðslu. Eldra aðalskipulag fellur úr gildi við gildistöku nýja skipulagsins.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Norðurþings, Garðarsbraut 5, Húsavík.

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsfulltrúi Norðurþings