Fara í efni

Félagsleg heimaþjónusta - Starf laust til umsóknar

Norðurþing leitar að starfsmanni í félagslega heimaþjónustu í tímavinnu í Kelduhverfi, Öxarfirði og á Kópaskeri. Starfshlutfall er í kringum 30%, en getur þó verið breytilegt. Þjónustunotendur eru einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir vegna öldrunar, fötlunar eða annarra langvarandi veikinda. Starfið felur í sér aðstoð með daglegar athafnir þjónustuþega svo sem þrif, hreyfingu, innkaup og aðrar persónulegar þarfir hvers og eins.

Helstu verkefni:

  • Aðstoð við daglegar þarfir þjónustuþega svosem þrif, aðstoð við innkaup, aðstoð við heimlishald og aðstoða við eigin umsjá.
  • Innlit, spjall, félagslegur stuðningur og hvatning til að geta búið sem lengst heima.
  • Efla einstaklinga til virkni og hreyfingar.

Hæfniskröfur:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og frumkvæði.
  • Vandvirkni.
  • Hafa náð 18 ára aldri.
  • Bílpróf og umráð með bíl nauðsynlegt.
  • Hreint sakavottorð.
  • Íslenskukunnátta nauðsynleg.

 

Vinnutími er umsemjanlegur í samstarfi við næsta yfirmann.

Óskað er eftir starfsmanni sem getur hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur til og með 8. júní n.k.

Sótt er um í gegnum 50skills hér Félagsleg heimaþjónusta - 50skills

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sunna Mjöll Bjarnadóttir á netfangið sunna@nordurthing.is