Fara í efni

Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir starfsmanni í heimaþjónustu

Markmið starfsins er að aðstoða og valdefla einstaklinga með sérstakar stuðningsþarfir til virkni og sjálfstæðrar búsetu.

Nánar um starfið:
Að veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklinga eru hafðir að leiðarljósi. Starfsmaður vinnur samkvæmt einstaklingsbundinni þjónustuáætlun. Þjónustunotendur eru einstaklingar með sérstakar stuðningsþarfir vegna öldrunar, fötlunar eða annarra langvarandi veikinda.
Starfshlutfall er 50%.
Vinnutími: Almennur vinnutími er samkvæmt vaktaskýrslu sem lögð er fram með sex vikna fyrirvara og samkvæmt samkomulagi við yfirmann.

Hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi og áhugi á að afla sér aukinnar þekkingar með námi eða þátttöku á námskeiðum og starfsmenntun. Sjúkraliða- eða félagsliðamenntun er kostur.
Jákvæðni, þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði.

Umsóknarfrestur er til 19. júní 2022
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney
Hreinsdóttir í síma 464-6100 eða  í gegnum netfangið fanney@nordurthing.is

Hægt er að sækja um starfið rafrænt hér