Fara í efni

Félagsþjónusta Norðurþings vekur athygli á rétti fatlaðs fólks til að sækja um styrki

Félagsþjónusta Norðurþings vekur athygli á rétti fatlaðs fólks til að sækja um styrki til námskostnaðar og til verkfæra- og tækjakaupa.

Samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:

  1. Styrki til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
  2. Styrki til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.

Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Norðurþings

Nánari upplýsingar um fylgigögn og skilyrði til umsókna má sjá hér https://www.nordurthing.is/static/files/reglur_og_samthykktir/2025/reglur-felgasthjonustu-um-styrki-til-nams-og-verkfaera-og-taekjakaupa-fatlads-folks2025.pdf

Frekari upplýsingar gefur Sunna Mjöll Bjarnadóttir forstöðuþroskaþjálfi í málefnum fatlaðra í síma 4646100 eða sunna@nordurthing.is

 

Umsóknarfrestur er til 10 september 2026.