Fara í efni

Fjölskylduratleikur Norðurþings

Ratleikur Norðurþings var haldinn í fjórða sinn á þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Settir voru upp skemmtilegir fjölskylduratleikir á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn.

Yfir tuttugu keppendur tóku þátt og skiluðu þeir svörum inn rafrænt.

Í dag var dregið úr pottinum og sigurvegari ratleiksins í ár er Júlía Björg Ingvarsdóttir, hún er 13 ára og á heima á Húsavík.

Við óskum henni innilega til hamingju með sigurinn. Í verðlaun fær hún gjafabréf í Pizza-kofann á Húsavík.

Takk fyrir að vera með, við hlökkum til að endurtaka leikinn að ári!