Fara í efni

Fjörubingó með Skoppu og Skrítlu á Húsavík

Skoppa og Skrítla að koma til Húsavíkur 20. september nk. með fjörubingó.

Þær ásamt sveitarfélaginu bjóða alla foreldra/forrsjáraðila og/eða ömmur og afa að koma og eiga gæðastund með börnunum sínum við ævintýraleit í fjörunni.

Bingóið verður haldið í Suðurfjöru (fjörunni neðan við Marabraut) og stendur yfir frá klukkan 15:00-17:00
Veitt verða verlaun fyrir bingó og hægt verður að vinna sér inn auakaverðlaun.

Norðurþing og Skoppa og Skrítla hvetja alla til að mæta og hafa gaman saman.