Fara í efni

Frá Höfnum Norðurþings

Nú er í gildi appelsínugul viðvörun en spáð er norðvestan og norðan 15-23 m/s í dag. Rigning eða slydda um landið norðanvert, en snjókoma á heiðum, sums staðar talsverð eða mikil úrkoma. Reiknað er með að versta veðrið gangi yfir Norðurþing í dag og standi fram yfir miðnætti í kvöld.

Í svona vindátt og hárri sjávarstöðu er hætta á verulegum óróa í Húsavíkurhöfn en háflóð er um kl. 19 í kvöld.

Búið er að hafa samband við eigendur báta og skipa og færa til í höfninni. Þá er björgunarsveitin Garðar í startholunum og tiltæk ef á þarf að halda.

Þjónustu-, útkalls- og bakvaktarsími hafnarinnar er 893-9175.

 

Starfsmenn Húsavíkurhafnar.