Fara í efni

Fræðsla fyrir aðstandendur fullorðinna einstaklinga með fötlun hjá Norðurþingi

Mánudaginn 9. október frá 16:30-18:30 í Framsýnarsalnum verður fræðsla frá Arne Friðrik Karlssyni.

Arne Friðrik hefur undanfarin ár sinnt fræðslu til starfsmanna Norðurþings sem sinna fullorðnum einstaklingum með fötlun.

Núna verður opinn fræðslufundur fyrir fjölskyldu og aðstandendur til þess að kynna hugmyndinafræðina sem unnið er eftir, hvert markmiðið er með þjónustu okkar og fleira.

Við hvetjum ykkur til þess að mæta og kynna ykkur þjónustuna sem verið er að veita fólkinu ykkar.