Framboð til Sveitarstjórnar Norðurþings 2026
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Frestur til að skila framboðslistum er til 10. apríl 2026, kl. 12:00 á hádegi.
Framboðum, ásamt nauðsynlegum fylgigögnum, skal skila á skrifstofu Norðurþings fyrir þann tíma eða til Yfirkjörstjórnar Norðurþings, sem tekur á móti framboðum í Stjórnsýsluhúsinu á Húsavík (Garðarsbraut 5, 2. hæð) föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 11:00-12:00.
Framboðslistar skulu skipaðir 9-18 fulltrúum og þeim skal fylgja listi 40-80 meðmælenda (frambjóðendur og meðmælendur þurfa að vera kjósendur í Norðurþingi og hver meðmælandi getur einungis mælt með einu framboði).
Mælst er til þess að framboð nýti rafrænt meðmælendakerfi á island.is fyrir söfnun meðmæla.Nánari upplýsingar má finna á vef Landskjörstjórnar: https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026/medmaelasoefnun Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu.
Nánari upplýsingar um framkvæmd og framboð má finna í kosningalögum nr. 112/2021 og á upplýsingavefnum www.kosning.is.
Skrifstofa Norðurþings (sími 464-6100) og Yfirkjörstjórn Norðurþings (kjorstjorn@nordurthing.is) veita allar frekari upplýsingar og leiðbeiningar vegna undirbúnings framboðslista og framkvæmd kosninganna í Norðurþingi.
Yfirkjörstjórn Norðurþings
Karl Hreiðarsson, formaður
Berglind Ósk Ingólfsdóttir
Berglind Ragnarsdóttir