Fara í efni

Framkvæmdir eru hafnar við lýsingu á gönguskíðasvæði á Reykjaheiði

Fjölskylduráð tók jákvætt í erindi um uppsetningu á lýsingu frá gönguskíðadeildinni á fundi sínum þann 31.október 2023 og skipulags- og framkvæmdaráð heimilaði fyrir sitt leyti jöfnun gönguskíðabrautar og uppsetningu ljósamastra á svæðinu á fundi sínum sama dag.

Nú er búið að setja upp einn staur með þremur kösturum og er það byrjunin á því að lýsa upp gönguskíðabraut á Reykjaheiði. Veturinn verður notaður til að hanna ljósabraut sem gönguskíðadeildin stefnir á að verði ca 2 km.