Fara í efni

Framkvæmdir í Íþróttahúsinu Kópaskeri

Nú hafa hafist framkvæmdir við lyftingaraðstöðuna í Íþróttahúsinu á Kópaskeri. Í þessarri viku verður unnið að því að koma upp aðgangstýringarhurð í lyftingarsalinn.

Á laugardaginn næstkomandi, þann 14.mars munu svo sjálfboðaliðar hefjast handa við að hreins út úr ræktinni tækjum og búnaði, farið verður í yfirhalningu á rýminu og svo komið fyrir nýju gólfefni að hluta ásamt nýjum tækjum og búnaði. Á meðan þessu stendur mun ræktin vera lokuð og er gert ráð fyrir að framkvæmdirnar taki 1 viku, við munum upplýsa ykkur ef einhverjar breytingar verða á því viðmiði. Við biðjum ykkur að sýna þessu skilning á meðan lokun stendur.

Einnig hvetjum við þá sem hafa vilja og tök á að bjóða sig fram til aðstoðar við þetta verkefni, margar hendur vinna létt verk.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt geta sett sig í samband við Jóhannes Gestsson s: 857-3309.


English
Construction work has now begun on the weightlifting facilities in the sports hall in Kópasker. This week, work will focus on installing an access-controlled door to the weightlifting room.

Next Saturday, March 14, volunteers will begin clearing out equipment and gear from the gym. The space will undergo maintenance and partial renovation, including the installation of new flooring as well as new equipment and facilities.

During this time, the gym will be closed. The work is expected to take about one week, and we will inform you if there are any changes to that timeline. We kindly ask for your understanding while the gym remains closed.

We also encourage anyone who is willing and able to volunteer to help with this project — many hands make light work.

Those interested in participating can contact Jóhannes Gestsson at phone number 857-3309