Fara í efni

Fréttir frá Orkuveitu Húsavíkur

Að venju hafa vor- og sumarmánuðirnir verið nýttir til ýmissa framkvæmda.

Í vor lauk vinnu við uppgerð á lögnum í dæluhúsi við Kópasker. Eldri lagnir voru komnar á aldur og kominn tími á endurnýjun. Samhliða var farið í endurbætur á stíflu við vatnsbólið á Katastöðum. Með þessum framkvæmdum aukum við afhendingaröryggi á hreinu og góðu vatni til íbúa Kópaskers og næsta nágrennis.