Frístund Borgarhólsskóla auglýsa eftir frístundarleiðbeinendum
09.09.2026
Störf í boði
Frístundarleiðbeinendur í 50% starfshlutfalli
Frístund Borgarhólsskóla auglýsir eftir leiðbeinendum í 50% starf, vinnutími er frá kl 12:30-16 alla virka daga með möguleika á meiri vinnu ef óskað er. Frístund er í boði fyrir börn í 1.-4.bekk þar sem hlutverkið er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf sem hentar öllum.
Hæfniskröfur:
- Hafa hreint sakavottorð.
- Hafa áhuga á að vinna með börnum.
- Geta unnið vel með öðrum.
- Sýna lipurð og jákvæðni í mannlegum samskiptum.
- Hafa frumkvæði og sýna sveigjanleika í starfi.
- Reynsla að starfi með börnum/ungmennum er æskileg.
Við hvetjum öll til að sækja um óháð kyni.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Frekari upplýsingar veitir Andri Birgisson á andrib@nordurthing.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. september næstkomandi.
Sótt er um starfið hér í gegnum 50skills: https://jobs.50skills.com/nordurthing/is/44805