Fyrsta skóflustungan að húsnæði fyrir félagsmiðstöð og frístund
Elsti og yngsti nemandi skólans tóku fyrstu skóflustunguna að nýju húsnæði sem mun hýsa félagsmiðstöð og frístund. Nýlega bauð sveitarfélagið Norðurþing út verkið og var Trésmiðjan Rein með lægsta tilboð í verkið sem var 97% af kostnaðaráætlun. Verklok eru áætluð í upphafi júní 2026. Flatarmál húsnæðisins er 875 m2.
Þau Julia Maria Dlugosz nemandi í fyrsta bekk og Sveinn Jörundur Björnsson nemandi í tíunda bekk og tóku fyrstu skólfustunguna að viðstöddu nemandum skólans og gestum. En í byggingunni verður ný aðstaða félagsmiðstöðvar og frístundar með tengigangi að jarðhæð Borgarhólsskóla og því innangengt milli nýja húsnæðisins og skólans.
"Ég held að nýtt frístundahús muni hafa veruleg áhrif hér á samfélagið. Frístundin og félagsmiðstöðin fyrir unglingana hafa verið á flakki síðustu ár og fá nú varanlegt heimili og þar er nálægðin við skóla og íþróttahús er mikilvæg. Húsið er hannað þannig að hægt sé að bjóða upp á margskonar starfsemi fyrir ýmsa hópa og verður sennilega alltaf í fullri notkun. Yndislegt fyrir Húsvíkinga að fá rými sem stuðlar að faglegra og fjölskylduvænna samfélagi.“
segir Andri Birgisson, deildarstjóri frístundar- og félagsmiðstöðvar.
Julia Maria Dlugosz nemandi í fyrsta bekk og Sveinn Jörundur Björnsson nemandi í 10. bekk