Fara í efni

Gatnagerð að hefjast í Reitnum á Húsavík

Fyrsti áfangi, vegna gatnagerðar í Reitnum ofan við Grundargarð er að fara í gang. Upphafsfundur verksins var haldinn 15. júní sl. en verktakinn er Vinnuvélar Eyþórs ehf. Verkís vann gögnin með starfsmönnum Norðurþings, hélt utan um verðkönnunina og samningagerð. Áhugi er á byggingum á svæðinu og nú þegar er búið að úthluta tveimur lóðum fyrir fjölbýlishús við Stóragarð 20 og Ásgarðsveg 29.

Hér má sjá samþykkt deiliskipulag sem var samþykkt á 128. fundi sveitarstjórnar Norðurþings