Gatnagerð að nýju hjúkrunarheimili miðar vel áfram
04.09.2026
Tilkynningar
Framkvæmdir við nýja götu við Auðbrekku sem mun liggja að nýju hjúkrunarheimili miðar vel áfram. Vinnuvélar Eyþórs annast gatnagerðina, en um þessar mundir er unnið að uppbyggingu götunnar og frágangi fyrir bundið slitlag sem mun koma í kjölfarið.
Samhliða gatnagerðinni er tækifærið nýtt til að efla innviði með lagningu nýrra vatns og fráveitu.
"Þetta er mikilvæg samgöngutenging sem tryggir öruggt og gott aðgengi að heimilinu fyrir íbúa, starfsfólk og gesti. Framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun og vonast til að þær klárist á tilsettum tíma í haust." Segir Bergþór Bjarnason sveitarstjóri.