Fara í efni

Gengið hefur verið frá ráðningu yfirmatráðs í Skólamötuneyti Húsavíkur

Dagný Þóra Gylfadóttir hefur verið ráðin yfirmatráður Skólamötuneytis Húsavíkur. Dagný lauk námi í matartækni með sérhæfingu í ofnæmis- og óþolsfæði frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 2020. Hún hefur mikla reynslu af störfum í mötuneytum og hefur starfað í eldhúsum og mötuneytum frá árinu 2006, þar á meðal eldhúsi leikskólans Grænuvalla á Húsavík og í skólamötuneyti Húsavíkur. Frá 2022 hefur hún starfað sem matartæknir hjá HSN á Húsavík.

Dagný býr með Ólafi Inga Þorgrímssyni og þremur börnum þeirra.

Dagný mun hefja störf 1. september.
Við bjóðum hana velkomna aftur til starfa hjá Norðurþingi.