Gönguleið að Gatanöf og Bakkahöfða - Framkvæmdir
Skiltamerkingar að Yltjörn sunnan Húsavíkur er ekki eina styrkverkefnið sem Norðurþing hefur fengið úthlutað frá Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða á síðustu árum. Árið 2024 fékk sveitarfélagið úthlutað kr. 7.000.000,- til uppbyggingar á nýju bílastæði og gönguleið um Bakkahöfða. Styrkurinn var einnig nýttur til að auka upplýsingagjöf á svæðinu og merkja betur gönguleið að Gatanöf og um Bakkahöfða. Auk styrks frá Framkvæmdasjóðum fékk sveitarfélagið einnig styrk úr styrkvegasjóði Vegagerðarinnar að upphæð kr. 1.500.000,- til að bæta aðkomu frá þjóðvegi 85 að bílastæðinu.
Gönguleiðin um Bakkahöfða mjög áhugaverð og tilvalin fyrir þá sem vilja taka sér um það 3 km gönguhring frá nýju bílastæði við Bakkahöfða. Við hvetjum því öll áhugasöm til að fara í göngutúr við tækifæri og njóta þeirrar náttúrufegurðar sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Rétt eins og með Yltjörnina komu margir verktakar úr sveitarfélaginu að verkefninu og eru þeir eftirfarandi(í stafrófsfröð):
- Hóll ehf
- TN Prent ehf
- Trésmiðjan Rein
- Sögin ehf
- Þjónustumiðstöð Norðurþings
Auk annara verktaka:
- Bústólpi ehf
- Málmsteypan Hella ehf