Fara í efni

Grenndargámar á Húsavík

Sett hefur verið upp grenndarstöð á Húsavík til söfnunar á málmi, gleri og textíl.
Grenndarstöðin er staðsett við Tún.

Þessu má skila í grenndarstöð:
Málmar: Litlir og hreinir málmhlutir eins og niðursuðudósir, krukkulok og sprittkertakoppar.
Gler: Hrein ílát og flöskur úr gleri. Tappar og krukkulok mega ekki fara með gleri heldur skal flokka með plasti og málmi eftir sem við á.
Textíll: Allur textíll eins og fatnaður, lín og efnisbútar (tunnur væntanlegar).

Öðrum flokkkum á að skila á móttökustöðvar.