Fara í efni

Grunnskóli Raufarhafnar auglýsir eftir starfsmanni í blandað starf

Auglýst er eftir starfsmanni í 100% stöðu til að sinna fjölþættu og blönduðu starfi innan Grunnskóla Raufarhafnar í samstarfi við kennara og annað starfsfólk. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Starfslýsing
Leitað er að fjölhæfum einstaklingi sem er áreiðanlegur, sveigjanlegur, jákvæður, samstarfsfús, lausnamiðaður og tilbúinn til að fara jafnt í öll þau störf sem ofan er getið þegar á þarf að halda og samkvæmt skipulagi.

Smellið á auglýsingu hér til hliðar fyrir nánari upplýsingar 

Umsóknarfrestur er til og með 13.janúar 2023.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá skólastjóra, Hrund Ásgeirsdóttur í síma 465-2246/616-6011 eða með fyrirspurnum á netfangið hrund@nordurthing.is
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila með tölvupósti til skólastjóra á netfangið hrund@nordurthing.is