Hafðu áhrif – taktu þátt og mættu á kjörstað
Nú styttis í kosningar.
Sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026 eru tækifæri til að hafa bein áhrif á nærumhverfið og þjónustuna sem skiptir okkur mestu máli í daglegu lífi.
Það að nýta kosningaréttinn sinn er sterk leið til að taka þátt í lýðræði og móta framtíð samfélagsins. Þótt það líti stundum út fyrir að atkvæði eins einstaklings skipti litlu máli, þá skiptir fjöldinn máli - og þegar við mætum á kjörstað eykst vægi málefna sem við viljum sjá breytast. Með góðri þátttöku tryggjum við að sveitarfélögin byggi á breiðri og fjölbreyttri rödd íbúa á öllum aldri.
Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki þegar kemur að hinu daglega lífi íbúa og sjá meðal annars um leik- og grunnskóla, samgöngumál, íþrótta- og æskulýðsmál, samgöngur, húsnæðismál, skipulag hverfa og ýmsa frístundaþjónustu – allt hlutir sem hafa bein áhrif á lífsgæði fólks, þar með talið ungs fólks og innflytjenda. Þegar við kjósum, styrkjum við rödd okkar í ákvarðanatöku og hjálpum sveitarfélögum að taka ákvarðanir sem endurspegla raunverulegar þarfir og væntingar íbúa þeirra.
Ef þú kýst ekki, taka aðrir ákvarðanir fyrir þína hönd.
Hafðu áhrif – taktu þátt og mættu á kjörstað 16. maí.
If you don’t vote, others will make decisions for you.
Make your voice heard – and vote on May 16.
Jeśli nie głosujesz, inni będą podejmować decyzje za Ciebie.
Miej wpływ – weź udział w wyborach i zagłosuj 16 maja.