Fara í efni

Hefur þú áhuga á að sinna félagslegri liðveislu?

Norðurþing óskar eftir einstaklingum sem hafa áhuga á að sinna félagslegri liðveislu.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.

Markmið með félagslegri liðveislu skv. reglum Norðurþings um stoð- og stuðningsþjónustu er að rjúfa félagslega einangrun, efla lífsleikni, samfélagsþátttöku og efla skjólstæðinga til aukinnar sjálfshjálpar.

Um tímavinnu er að ræða og alla jafnaer miðað við 12-16 klst. á mánuði. Vinnutími er í samráði við liðþega, enyfirleitt seinni part dags og um helgar.

Frekari upplýsingar veita:
- Sunna Mjöll Bjarnadóttir forstöðumaður í málefnum fatlaðra á netfanginu sunna@nordurthing.is
- Anna Björg Leifsdóttir forstöðumaður í málefnum barna og fjölskyldna á netfanginu anna@nordurthing.is