Fara í efni

Heitavatnslaust í brekkunum á Húsavík

Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust í Höfðabrekku, Baldursbrekku, Sólbrekku, Lyngbrekku og Laugarbrekku númer 8 föstudaginn nk. 21. júlí frá klukkan 10:00 til 14:00.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Starfsfólk Orkuveitu Húsavíkur.