Fara í efni

Hjúkrunarheimili á Húsavík - Útboð

Ríkiskaup og framkvæmdasýslan- Ríkiseignir (FSRE), KT. 510391-2259, fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélaganna Norðurþings, Þingeyjarsveitar og Tjörneshrepps óska eftir tilboðum í verkið:
Nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík

Verkframkvæmdin er að byggja 60 íbúa hjúkrunarheimili á 3.hæðum staðsett á Húsavík. Um er að ræða heildarframkvæmd, fullklárað hús og lóðarfrágang.

Helstu stæðir:

Bygging er kjallari og tengigangur, 3 hæðir auk þakhæðar sem rúmar tæknirými.

Heiti hæðar: Brúttó m2 (D8) Brúttó m3 (D11)
Kjallari/tengigangur: 267,4 1152,6
1.hæð: 1317,6 1296
2.hæð: 1439,9 5134,3
3.hæð: 1426,9 5688,0
Þakrými: 166,3 2625,5
Heild: 4596,5 19587,1

 

Allar nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.

Verkkaupi: Heilbrigðisráðuneytið, Sveitarfélögin Norðurþing, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit.

Umsjón: Framkvæmdasýslan Ríkiseignir

Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.

Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.