Holur í götum á Húsavík
31.03.2026
Tilkynningar
Ágætu vegfarendur og ökumenn,
Götur á Húsavík eru að koma illa undan snjó og víða í bænum má finna stórar og djúpar holur. Vegna bleytu og snjóalaga er ekki unnt að ráðast í varanlegar viðgerðir að svo stöddu. Starfsmenn þjónustumiðstöðvar munu hins vegar gera sitt besta til að bregðast við með bráðabirgðaaðgerðum, svo sem að fylla í holur með möl og setja upp aðvörunarskilti þar sem þörf krefur.
Ökumenn eru hvattir til að sýna sérstaka aðgát og tillitssemi í umferðinni. Ástandið er verst á helstu umferðargötum og við gatnamót þeirra.
Unnið verður að varanlegum úrbótum um leið og veður og aðstæður leyfa.
-Framkvæmdarsvið Norðurþings