Hreinsunardagurinn á Raufarhöfn 27.maí
26.05.2026
Tilkynningar
Hreinsunardagurinn á Raufarhöfn verður haldinn miðvikudaginn 27. maí 2026 og íbúar eru hvattir til að taka þátt og taka til í sínu nærumhverfi.
Hreinsunin verður frá kl. 16:00–19:00. Hægt verður að nálgast ruslapoka í áhaldahúsinu. Að degi loknum verða grillaðar pylsur í áhaldahúsinu um kl. 19 fyrir þátttakendur.
Einnig verður boðið frítt í sund föstudaginn 29.maí fyrir þá sem tóku þátt.
Margar hendur vinna létt verk og sjáumst með góða skapið.