Fara í efni

Húsavíkurflug – áskorun til ráðherra

Nú liggur fyrir að síðasta áætlunarflug á Húsavíkurflugvöll þennan veturinn næstkomandi föstudag14. mars en þá lýkur ríkisstyrktu flugi sem Norlandair hefur sinnt síðustu 3 mánuði. Hópur heimafólks fundaði með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í gær og sendi í framhaldi frá sér eftirfarandi áskorun:

Baráttuhópur fyrir Húsavíkurflugi (sem samanstendur af fulltrúum Norðurþings, Þingeyjarsveitar, stéttarfélögunum í Þingeyjarsýslum, atvinnufyrirtækjum þ.m.t. ferðaþjónustunni, HSN í Þingeyjarsýslum, SSNE og Húsavíkurstofu) skorar á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjármálaráðherra að tryggja áfram fjármuni á fjárlögum til farþega- og sjúkraflugs um Húsavíkurflugvöll. Við teljum mjög mikilvægt að haldið sé úti öflugum flugsamgöngum allt árið og að samlegðaráhrif geti verið með öðru innanlandsflugi á Íslandi, m.a. m.t.t. stærðar þeirra flugvéla sem nýttar eru í flugið.

Hópurinn gerir kröfu á að viðhaldsverk á flugbraut og flugstöð á Húsavíkurflugvelli sem eru á samgönguáætlun komist til framkvæmda sem fyrst enda afar mikilvægt að mannvirkjum sem tengjast flugsamgöngum um Húsavíkurflugvöll sé vel við haldið.