Íbúagátt Norðurþing - Norðurþing eflir stafræna þjónustu með íbúagátt og rafrænum umsóknum
Norðurþing bætir stafræna þjónustu við íbúa og tekur í notkun íbúagátt. Íbúagáttinni er ætlað að auka sjálfvirkni og gagnvirkni í meðferð mála, eyðublaða, umsókna og erinda fyrir íbúa Norðurþings og hagkvæmni í rekstri. Við þessar breytingar munu eldri eyðublöð hverfa af heimasíðu Norðurþings og þurfa allar umsóknir að fara í gegnum íbúagáttina. Eyðublöð og umsóknir fara þá í farveg og skila sér svo beint á starfsmann viðeigandi málaflokks.
Athugið að umsóknir í leik og grunnskóla sem og eyðublöð sem tengist skólaþjónustunni verður óbreytt um sinn og má finna undir síðunni Grunnskólar.
Hlekkur á íbúagáttina er staðsettur efst á heimsíðunni Norðurþings og þurfa íbúar að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Við hvetjum íbúa Norðurþings til að skrá sig, kynna sér þessa síðu þótt ekki sé verið að fara sækja um neitt.
Hlekkur á íbúagátt má einnig finna hér: Íbúagátt Norðurþings