Fara í efni

Íþróttavika Evrópu í Norðurþingi 23.-30.septmeber – finndu þína hreyfingu!

Íþróttavika Evrópu stendur yfir dagana 23.–30. september og verður fjölbreytt dagskrá í boði víðs vegar um Norðurþing. Viðburðir verða á Húsavík, Raufarhöfn og í Öxarfirði og eru íbúar á öllum aldri hvattir til að taka þátt, prófa eitthvað nýtt og finna hreyfingu við sitt hæfi.

Íþróttavika Evrópu er haldin undir merkjum #BeActive og er markmið hennar að hvetja fólk til aukinnar hreyfingar og minna á að hreyfing getur verið fjölbreytt, skemmtileg og fyrir alla.

Börn geta prófað nýjar íþróttir frítt

Sérstök áhersla er lögð á að börn fái tækifæri til að kynnast fjölbreyttum íþróttum. Völsungur býður börnum að koma og prófa æfingar hjá deildum félagsins án endurgjalds í tilefni Íþróttaviku Evrópu. Börn sem langar að prófa nýja íþrótt eru sérstaklega hvött til að nýta tækifærið og mæta á æfingu.

Fjölbreytt dagskrá á Húsavík

Á Húsavík verður mikið um að vera alla vikuna. Þar má meðal annars finna sundleikfimi, heilsubótargöngu, skák, pílukast, Íþróttaskóla Völsungs, Zumba í sundlauginni, fjölskyldutíma í Íþróttahöllinni, opinn hreyfitíma, brasilískt Jiu Jitsu, blak fyrir byrjendur, skemmtiskokk, hjólaferð á rafmagnshjólum og sundlaugardiskó.

Vikunni lýkur miðvikudaginn 30. september með fjölbreyttri dagskrá, meðal annars sundleikfimi, opnum aðgangi í Focus Fitness, brasilísku Jiu Jitsu og fyrirlestrinum „Sjálfsmyndin – lykillinn að varanlegum breytingum“ með Dögg Stefáns.

Hreyfing og samvera á Raufarhöfn

Á Raufarhöfn stendur UMF Austri fyrir fjölbreyttri dagskrá. Þar verður meðal annars boðið upp á „Bakgarðinn“, göngu á íþróttavellinum, sund, blak, leiðsögn á líkamsræktartækjum, badminton og borðtennis.

Einnig verður fyrirlestur með Bjarti Guðmundssyni þar sem fjallað verður um hvernig hægt er að bæta líðan, auka jákvæðni og takast á við áskoranir.

Þátttakendur á Raufarhöfn geta jafnframt safnað metrum í göngu og sundi yfir vikuna og séð hversu langt samfélagið kemst saman. Vikunni lýkur síðan með sameiginlegri göngu miðvikudaginn 30. september.

Íþróttavikan í Öxarfirði

Í Öxarfirði verður einnig boðið upp á dagskrá í tilefni vikunnar. Þar verður meðal annars opinn aðgangur í ræktina í Lundi, þar sem hægt verður að kynna sér aðstöðuna og fræðast um brennslu- og styrktaræfingar.

Í íþróttahúsinu á Kópaskeri verður síðan fjölskyldutími ásamt opnum aðgangi í ræktina. Fjölskyldutíminn er ætlaður börnum og foreldrum til að hreyfa sig og eiga skemmtilega stund saman.

Frítt í sund

Frítt verður í sundlaugarnar á Húsavík og Raufarhöfn í tilefni Íþróttaviku Evrópu. Tilvalið er því að nýta vikuna til að skella sér í sund með fjölskyldu eða vinum.

Íþróttavika Evrópu er kjörið tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, bæta meiri hreyfingu inn í daglegt líf og hvetja hvert annað áfram. Íbúar eru jafnframt hvattir til að nýta virkan ferðamáta og ganga eða hjóla í skóla og vinnu þegar aðstæður leyfa.

Kynntu þér dagskrána hér fyrir neðan, taktu þátt og finndu þína hreyfingu!

Fylgstu með okkur á facebook viðburðinum Íþróttavika Evrópu í Norðurþingi 2026 hér.

#BeActive – Finndu þína hreyfingu