Jólatré á Húsavík 2021
01.11.2021
Tilkynningar
Nú styttist í jólin!
Hefð er fyrir því að jólatré Húsavíkinga sé fengið úr heimagarði á Húsavík.
Líkt og í fyrra óskar umhverfisstjóri eftir tilnefningum frá eigendum grenitrjáa á Húsavík sem vilja, eða þurfa að losna við sitt tré. Valið verður úr tilnefndum trjám og um þau kosið hvaða tré fái að vera jólatré Húsavíkur þessi jól.
Sveitarfélagið mun kosta fellingu á trénu og frágang þess.
Síðasti dagur tilnefningar er 14. nóvember og kosið verður 16. - 21. nóvember.
Tendrað verður á jólatréinu laugardaginn 27. nóvember
Tilnefningar skulu berast umhverfisstjóra á netfangið smari@nordurthing.is eða á nordurthing@nordurthing.is