Kaldavatnslaust í Grundargarði og Stóragarði fimmtudaginn 17. september
15.09.2026
Tilkynningar
Vegna tengingar á nýrri stofnlögn verður lokað fyrir kalt vatn í Grundargarði og Stóragarði fimmtudaginn 17. september frá kl. 13:00 og fram eftir degi.
Á meðfylgjandi mynd eru stjörnumerkt þau hús sem verða vatnslaus.
Íbúar og aðrir notendur á svæðinu eru beðnir um að gera viðeigandi ráðstafanir vegna lokunarinnar.
Orkuveita Húsavíkur biður viðskiptavini sína velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þakkar fyrir sýndan skilning.
Starfsfólk Orkuveitu Húsavíkur