Fara í efni

Krabbameinsfélag Þingeyinga og Lóurnar afhentu sveitarfélaginu bekki

Þann 17. júní sl. tók Bergþór Bjarnason sveitarstjóri við bekkjum fyrir hönd Norðurþings frá Krabbameinsfélagi Suður-Þingeyinga og Lóunum. Bekkjunum hefur verið komið fyrir í skrúðgarðinum á Húsavík, við Skógargerðislækin, þar sem þeir munu nýtast íbúum og gestum til hvíldar og samveru.

Ásgerður Arnarsdóttir formaður félagsins sagði í ávarpi sínu bekkina vera tákn um mikilvægi hreyfingar, útiveru og samveru. Það að hlúa að heilsunni sé það besta sem við gerum fyrir okkur og jafnvel stuttur göngutúr á hverjum degi geti haft jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan. Þá skipti miklu máli að hafa fallega staði þar sem fólk geti sest niður, látið hugann reika, notið umhverfisins eða samverunnar. Einnig sagði hún að bjartsýni væri skilda þegar tekist er á við erfið veikindi og lífið væri ævintýri þrátt fyrir áskoranir.

Séra Sólveig Halla Kristjánsdóttir sóknarprestur blessaði bekkina og fór með bæn við athöfnina.

„Þetta er dásamleg gjöf sem fegrar umhverfið og nýtist öllum í samfélaginu. Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga og Lóurnar eiga miklar þakkir skilið fyrir þetta fallega framtak til Norðurþings. Bekkirnir í skrúðgarðinum á Húsavík gefa fólki færi á að setjast niður, njóta náttúrunnar og finna ró. Það er dýrmætt að hafa svona öflugt félag á svæðinu sem hugsar svona vel um samfélagið sitt.“ Er haft eftir Bergþór Bjarnasyni sveitarstjóra.