Kristbjörn Óskarsson fagnaði 45 ára starfsafmæli í gær, 1.júní
Í gær, þann 1.júní, fögnuðum við á skrifstofum Norðurþings að Kiddi Óskars hefur unnið hjá okkur í 45 ár.
Hann var ráðinn til starfa á bæjarskrifstofu Húsavíkurkaupstaðar 1981 og hefur alla tíð haft starfsheitið sendill með meiru. Í fyrsta ráðningasamningi var starfssviðið t.d. að fara í banka, pósthús o.fl. stofnanir daglega, fara með fundarboð, sækja ýmislegt á flug og bifreiðaafgreiðslur og sjá um kaffihitun og uppþvott á kaffistofu. Hlutverkið hefur ekki breyst mikið í gegnum tíðina þótt tíðarandinn breytist og tölvupóstar hafi tekið við af bréfpósti að mestu leyti.
Kiddi er alltaf mættur fyrstur á morgnana á skrifstofuna og passar að það sé heitt á könnunni þegar samstarfsfólkið mætir. Hann er vakandi yfir fundadögum því á veit hann að það þarf að hella meira upp á kaffikönnurnar. Hann er líka sá sem man alltaf eftir tillidögum og passar t.d. upp á að karlpeningur vinnustaðarins gleymi ekki konudeginum og geri vel við kvenkyns starfsfélagana þann dag. Þar fer hann í fylkingarbrjósti og undirbýr viðburðinn í marga daga. Hann safnar líka gjöfum og færir konunum alls kyns kremprufur og trít í tilefni dagsins.
Kiddi er mikill keppnismaður og á fínan feril í boccia þar sem hann var m.a. útnefndur íþróttamaður Húsavíkur 2014. Hann passar alltaf upp á að Norðurþing sendi lið í opna bocciamót Völsungs. Þar fer hann fyrir liðinu og honum finnst klárlega best ef liðið kemur heim með verðlaun.
Norðurþing óskar Kidda til hamingju með 45 ára áfangann, þakkar honum vel unnin störf og góða samveru í gegnum tíðina og að sjálfsögðu með von um áframhaldandi farsælt samstarf.