Kynning skipulagslýsingar vegna deiliskipulags iðnaðarsvæðis á Bakka – 3. áfangi, Norðurþingi.
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings samþykkti á fundi sínum þann 3. mars 2026 að kynna skipulagslýsingu skv. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir iðnaðarsvæði á Bakka – 3. áfangi á iðnaðarsvæði I1 í Norðurþingi.
Aðdragandi deiliskipulagsgerðar er fyrirhuguð uppbygging á svæðinu. Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Bakka, 3. áfangi sem nú er til umfjöllunar snýst um að vinna deiliskipulag svæðisins til að skilgreina lóðir á svæðinu til að mæta eftirspurn sem er til staðar. Gert er ráð fyrir þremur lóðum bæði austan og vestan megin við þjóðveg ásamt nýrri vegtengingu.
Skipulagslýsing þessi er nú til kynningar á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is) Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við skipulagslýsinguna er bent á að koma þeim á framfæri inn á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar undir málsnúmeri 260/2026.
Kynningartími skipulagslýsingarinnar er frá 12. mars 2026 - 23. apríl 2026.
Hér má sjá skipulagslýsingu iðnaðarsvæðisins á Bakka
Auglýsing á skipulagsgátt