Fara í efni

Kynning tillögu á vinnslustigi vegna nýs deiliskipulags iðnaðarsvæðisins á Bakka – 3. áfangi.

Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings samþykkti á fundi sínum 08.09.2026 að kynna tillögu á vinnslustigi vegna nýs deiliskipulags á iðnaðarsvæði við Bakka. Kynningin er unnin skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Með vinnslutillögunni fylgir uppdráttur með greinargerð. Skipulagssvæðið er 6,1 ha að stærð og er ein iðnaðarlóð afmörkuð innan skipulagssvæðisins. Lóðarstærð er 51.935 fm.

Kynningarfundur verður haldinn á opnu húsi þann 15. september 2026 klukkan 16:00 á Fosshótel Húsavík. Sveitarstjóri opnar fundinn. Fulltrúi Cowi kynnir skipulagstillöguna. Fyrirhugaður framkvæmdaraðili kynnir hugmyndir sínar um uppbyggingu gagnavers á lóðinni.

Skipulagstillaga þessi er nú til kynningar í skipulagsgátt Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnunar undir málsnúmeri 260/2026 og á heimasíðu Norðurþings www.nordurthing.is. Kynningartími vinnslutillögunar er frá 9. september 2026 – 7. október 2026. Tekið verður á móti ábendingum á skipulagsgátt Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnunar undir málsnúmeri 260/2026.