Fara í efni

Laki og tengd félög áttu hagstæðasta tilboðið í byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík í útboði á vegum Framkvæmdasýslu Ríkiseigna (FSRE).

Fréttatilkynning frá Laka ehf.

Laki og tengd félög áttu hagstæðasta tilboðið í byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík í útboði á vegum Framkvæmdasýslu Ríkiseigna (FSRE).

Hjúkrunarheimilið verður rúmlega 4.000 fermetrar að stærð og mun hýsa 60 ný hjúkrunarrými. Hönnun heimilisins er í höndum HJARK arkitekta undir stjórn Huldu Jónsdóttur. Við hönnun byggingarinnar var lögð áhersla á að búa til skjólrík útisvæði, tryggja heimilislegt umhverfi, góða vinnuaðstöðu starfsfólks og aðstöðu sem styður við vellíðan íbúa.
Um er að ræða metnaðarfullt verkefni sem verður eitt af stærri uppbyggingar-verkefnum á svæðinu á næstu árum. Byggingin verður reist með stálgrindartækni sem stuðlar að hraðri framkvæmd, auknum fyrirsjáanleika og háum gæðastöðlum í byggingarframkvæmdum.

"Við hlökkum til að vinna með FSRE, stjórnsýslu og hagaðilum á Húsavík að framgangi þessa mikilvæga verkefnis sem hefur beðið lengi eftir að verða að veruleika."

Verkefnið er mikilvægt framlag til uppbyggingar heilbrigðisinnviða í Norðurþingi og mun styrkja þjónustu við eldri borgara á svæðinu.
Helstu leigutakar samstæðu Laka eru meðal annars Reykjavíkurborg, Kerecis og FSRE. Dótturfélag Laka er jafnframt að byggja 2.000 fermetra leikskóla fyrir Reykjavíkurborg sem mun rísa í Elliðaárdal í sumar, við hliðina á Hinu húsinu, miðstöð ungs fólks, sem borgin leigir einnig af félaginu.
Fyrirhuguð uppbygging og tímalína framkvæmdarinnar var kynnt fyrir sveitar-stjórnarfólki á svæðinu og fulltrúum HSN á fundi á Húsavík. Fundarmenn lýstu ánægju með uppbyggingaráformin og það er tilhlökkun hjá heimafólki að taka þátt í þessu metnaðarfulla verkefni næsta árið en áætluð verklok og afhending byggingarinnar er á vordögum 2027.

"Það var mjög góður fundur og gaman að fá kynningu á fyrirhuguðum framkvæmdum. Með undirskrift samnings í vikunni fór allt á fullt í undirbúningi. Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings mun funda um byggingaráformin á þriðjudag og þau verkefni við bygginguna sem snúa að Norðurþingi strax á þessu ári. Verktími er mjög stuttur eða rúmlega eitt ár, áætluð verklok vorið 2027." segir katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings