Fara í efni

Laus staða forstöðumanns í Vík íbúðakjarna

Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir framsýnum, metnaðarfullum og öflugum forstöðumanni í Vík íbúðakjarna þar sem unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn. Forstöðumaður skal vera leiðandi í þróun þjónustunnar og veita faglega forystu.
Starfsemi Víkur byggir á þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.
Aðaláherslan er að veita íbúum aðstoð til sjálfstæðs- og innihaldsríks lífs, innan sem utan heimilis.

Smellið á auglýsingu hér til hliðar til að sjá nánari upplýsingar.
Nánari upplýsingar gefur Hróðný Lund - hrodny@nordurthing.is