Fara í efni

Laus staða kennara við Grunnskóla Raufarhafnar

Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn leik-og grunnskóli með alls um 11 nemendur þar sem uppeldisstefnan Jákvæður agi er höfð að leiðarljósi. Skólinn er í samstarfi við Rif rannsóknarstöð sem hefur aðsetur innan skólans. Einnig er samstarf við Öxarfjarðarskóla sem er í 64 km fjarlægð frá Raufarhöfn. Nemendum grunnskólans er ekið einu sinni í viku í Öxarfjarðarskóla þar sem þeir fá kennslu í list- og verkgreinum, íþróttum auk tónlistarkennslu á vegum Tónlistarskóla Húsavíkur.

50% staða kennara samrekins leik- og grunnskóla Raufarhafnar eru laus til umsóknar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi.

Leitað er að öflugum kennara sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við skólastjóra, starfsfólk, foreldra og nemendur. Jafnframt að styrkja stöðu skólans í nærumhverfinu með samstarfi við Öxarfjarðarskóla og aðrar stofnanir.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla nemenda í 1.-10. bekk; kennsla í íslensku, stærðfræði, erlendum tungumálum, samfélags- og náttúrufræðigreinum o.fl.
  • Þátttaka í þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og lög um leik- og grunnskóla
  • Þátttaka í starfsþróun og vinnutilhögun.
  • Óskað er sérstaklega eftir kennara sem er áreiðanlegur, hefur leiðtogahæfni, sýnir frumkvæði, er ábyrgur, skapandi og lausnamiðaður.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í leik- og grunnskóla.
  • Kennslureynsla á grunnskólastigi og reynsla af umsjónarkennslu.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
  • Kennslureynsla af samkennslu árganga er mikilvæg.
  • Mikil samskiptahæfni, góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og aðlögunarhæfni.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Reynsla af þátttöku í þróun á grunnskólastarfi er æskileg.
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegra greina er kostur.

Leiguhúsnæði er í boði á staðnum.

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2024.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings, jon@nordurthing.is

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsókna og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda ásamt prófskírteinum og leyfisbréfi.

Norðurþing áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.

Gerð er krafa um hreina sakaskrá og heimild til að afla upplýsinga þar að lútandi.

Nánari upplýsingar veitir fræðslufulltrúi Norðurþings í síma 464-6123 eða með því að svara fyrirspurnum sem sendar eru á netfangið jon@nordurthing.is

Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi
og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.