Laus staða ráðgjafa í málefnum barna og fjölskyldna
Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir ráðgjafa í málefnum barna- og fjölskyldna. Um er að ræða 50 % stöðu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. október 2025.
Leitað er eftir einstaklingi með þekkingu og reynslu af félagsþjónustu eða vinnu með börnum og fjölskyldum, sem hefur áhuga fyrir málefnum fjölskyldna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis-, menntavísinda eða aðra menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af félagsþjónustu æskileg
- Hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum
- Góðir samskiptahæfileikar
- Góð tölvukunnátta
- Þekking á ONE-system kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Bílpróf
Viðkomandi starfar meðal annars eftir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, stjórnsýslulögum nr. 37/1993, lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 og öðrum lögum er lúta að sviðinu.
Laun eru skv. kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Allt áhugasamt fólk er hvatt til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálastjóri, fyrirspurnir skulu sendar á netfangið tinna@nordurthing.is
Starfsferlisskrá og kynningarbréf sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfi skulu fylgja umsókninni. Að auki þarf að fylgja hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst 2025