Fara í efni

Laus staða yfirmatráðs - deildarstjóra skólamötuneytis á Húsavík

Fullt starf yfirmatráðs skólamötuneytis Húsavíkur er laust til umsóknar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi.

Skólamötuneyti Húsavíkur hóf starfsemi sína 1. ágúst 2020. Mötuneyti leikskólans Grænuvalla og mötuneyti Borgarhólsskóla voru þá sameinuð í eitt. Yfirmatráður rekur mötuneytið sem sérstaka deild innan sveitarfélagsins og er deildarstjóri hennar. Eldað er í vel útbúnu eldhúsi í Borgarhólsskóla, einnig er skólamötuneytið með móttökueldhús á Grænuvöllum. Mötuneytið fylgir ráðleggingum embættis landlæknis um næringu. Stöðugildi við mötuneytið eru samtals 4,25 og eldað er daglega fyrir um 550 nemendur og starfsmenn Borgarhólsskóla og Grænuvalla auk þess sem eldað er fyrir Miðjuna dagþjónustu og starfsfólk stjórnsýsluhúss.

Starfslýsing

Leitað er að stjórnanda sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja og starfrækja öflugt og metnaðarfullt skólamötuneyti í samvinnu við skólana, starfsfólk, foreldra og nemendur. Leitað er eftir stjórnanda sem hefur sterka og faglega sýn á starfsemi skólamötuneyta. Yfirmatráður ber ábyrgð á fjárhagsáætlun og rekstri, ráðningu annarra starfsmanna og mannahaldi, matseðlagerð, pöntun hráefnis, eldamennsku, verkskipulagi og annarri starfsemi mötuneytisins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af vinnu í eldhúsi eða mötuneyti er skilyrði
  • Reynsla af stjórnun og/eða faglegri forystu í mötuneytiseldhúsi
  • Góð þekking á næringu barna
  • Forystuhæfileikar, mikil samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
  • Menntun á sviði matargerðar er kostur
  • Reynsla af rekstri og fjárhagsáætlunargerð er kostur
  • Lipurð og færni í samskiptum
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af HACCP kerfi er kostur
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst 2023.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings á netfangið jon@nordurthing.is

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík í síma 464 6100 eða með fyrirspurnum á netfangið nordurthing@nordurthing.is