Fara í efni

Laus störf í félagsmiðstöð á Húsavík

Auglýst er eftir forstöðumanni æskulýðsmiðstöðvar og frístundaleiðbeinanda.

Unnið er með ungmennum á aldursbilinu 10-16 ára. Vinnutími getur verið breytilegur en fer að mestu leyti fram milli kl 17:00-22:00 tvo virka daga í viku.

Starfslýsing frístundaleiðbeinanda
Vinnur með börnum, unglingum eða ungmennum, í félagsmiðstöð á Húsavík. Starfar undir stjórn yfirmanns.

Starfslýsing forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar
Forstöðumaður stýrir faglegu starfi, sér um rekstur og innkaup. Starfsmaður er með viðvarandi ábyrgð á verkstjórnun annarra starfsmanna.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hafa náð 18 ára aldri
  • Hafa hreint sakarvottorð
  • Hafa gott vald á íslensku
  • Hafa áhuga á að vinna með börnum
  • Geta unnið vel með öðrum
  • Vera lipur og jákvæður í mannlegum samskiptum
  • Hafa frumkvæði og geta verið sveigjanlegur í starfi
  • Reynsla af starfi með börnum/ungmönnum er æskileg

Umsóknarfrestur er til 19. desember 2023
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Eingöngu er tekið við umsóknum sem berast með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað á vef Norðurþings 

Sótt er um starfið hér