Fara í efni

Laus tímabundin staða fjölmenningarfulltrúa

Norðurþing auglýsir eftir fjölmenningarfulltrúa hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða tímabundið starf í afleysingu vegna fæðingarorlofs frá 1. júlí 2025 til 1. júní 2026. Starfshlutfall allt að 50%. Fjölmenningafulltrúi skipuleggur og heldur utan um ýmsa viðburði í sveitarfélaginu. Fjölmenningarfulltrúi er ráðgefandi í málefnum innflytjenda og nýrra íbúa og starfar náið með sviðsstjórum og öðrum stjórnendum sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulagning og utanumhald ýmissa viðburða á vegum sveitarfélagsins á sviði menningarmála
  • Umsjón ýmissa samninga í tengslum við menningar- og listastarf í sveitarfélaginu
  • Annast upplýsingagjöf og gerð kynningarefnis fyrir nýja íbúa í gegnum vefsíðu og aðra miðla
  • Stuðla að samstarfi á milli þeirra sem koma að málefnum nýrra íbúa og innflytjenda í sveitarfélaginu og gæta hagsmuna þeirra innan stjórnsýslu sveitarfélagsins.
  • Stuðla að fjölbreyttu og fjölmenningarlegu samfélagi í sveitarfélaginu
  • Tengiliður við starfsfólk bókasafna sveitarfélagsins.

Þekkingar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Þekking á rekstri og áætlanagerð er kostur.
  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
  • Reynsla af menningar-, mannúðar og/eða fjölmenningarmálum er kostur.
  • Áhugi á samfélags- og menningarmálum er skilyrði.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem og góð þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni.

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2025. Umsóknir skulu sendar á nordurthing@nordurthing.is

Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og staðfesting á menntun.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Fyrir nánari upplýsingar má senda fyrirspurn á nordurthing@nordurthing.is