Fara í efni

Lausar kennarastöður við Öxarfjarðarskóla

Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli með alls um 50 nemendur, þar af 30 nemendur í grunnskóla þar sem um samkennslu árganga er að ræða. Starfað er í anda Jákvæðs aga og verið er að innleiða teymiskennslu. Skólinn er í samstarfi við Grunnskóla Raufarhafnar og stýrir sami skólastjóri báðum skólum.

Stöður sem um ræðir:
-Aðstoðarmatráður
-Skólaliði
-Leikskólakennari

Smellið á auglýsingu hér til hliðar fyrir nánari upplýsingar.


Umsóknarfrestur er til og með 15.júní 2022.

Allar frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri í síma 465-2246 eða á hrund@nordurthing.is